Þorgrímur goði spyr nú athæfi Búa og atferði en sakir þess að hann hafði nær
höggið honum í drápi föður hans þá gerði hann nú eigi til hans og hefir
þetta nú svo liðið nokkura stund.

8. kafli
Þess er nú getið einn tíma að Örn austmaður kemur að máli við Kolla bónda.
Hann mælti svo: "Hér horfði til þess Kolli," sagði hann, "að hér mundu verða
góð híbýli og það eina leiðir af þér til er vel er. En það má þykja mikil
ófyrirsynja er þessir tveir menn hafa vanið hingað komur sínar og þykir mér
það þolanda ef illa skal vera að Búi hafi slíka meðferð en hitt óhræsi er
þar situr og hlýðir til tals manna þá er eg é enda kljáður að þola það
lengur."
Kolli segir: "Hér vil eg að þú hafir þá meðferð er þér líkar."
Þenna sama aftan bað Örn svein sinn taka vopn þeirra og ganga með suður úr
túni og bíða sín þar. En með því að þys var mikill en margir menn bjuggust
þá gáfu öngvir menn gaum að Austmanni hvert hann gekk. Sneri Austmaður þá
suður um holt það er þar var. Sátu þeir þar tveir fyrir Kolfinni.
Eftir leikinn gekk Kolfinnur út að vanda og fór leið sína. En er hann kom
suður af holtunum hlupu þeir Örn austmaður upp og sóttu að honum. Kolfinnur
varðist með lurkinum og barði vopnin fyrir þeir. Varð þeim hann torsóttari
en þeir hugðu. Og er þeir höfðu saman átt um hríð sló Kolfinnur sveininn í
rot. Hraut þá frá honum bæði skjöldurinn og sverðið. Kolfinnur greip þá upp
hvorttveggja. Sótti hann þá að Erni austmanni og lauk svo að Örn féll en
Kolfinnur varð sár. Í því raknaði sveinninn við og vildi Kolfinnur ekki gera
honum meira. Gekk hann þá leið sína. Sveinninn sá Austmanninn veginn. Skaut
hann þá yfir hann skildi, gekk síðan heim í Kollafjörð. Kolli lét flytja
heim lík hans og búa um eftir siðvenju.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.