Bolli tók vel undir þetta og bað Kjartan einn ráða þeirra máli. Viðræðu
þeirra Kjartans hafði konungur fyrri spurt en borðin væru í brottu því að
hann átti trúnað í hvers þeirra herbergi hinna heiðnu manna.
Konungur verður allglaður við þetta og mælti: "Sannað hefir Kjartan
orðskviðinn, að hátíðir eru til heilla bestar."
Og þegar um morguninn snemma er konungur gekk til kirkju mætti Kjartan honum
á strætinu með mikilli sveit manna. Kjartan kvaddi konung með mikilli blíðu
og kvaðst eiga skyld erindi við hann. Konungur tók vel kveðju hans og kvaðst
hafa spurt af hið ljósasta um hans erindi "og mun þér þetta mál auðsótt."
Kjartan bað þá ekki dvala við að leita að vatninu og kvað þó mikils mundu
við þurfa.
Konungur svarar og brosti við: "Já Kjartan," segir hann, "eigi mundi okkur
hér um harðfæri skilja þótt þú værir nokkuru kaupdýrri."
Síðan voru þeir Kjartan og Bolli skírðir og öll skipshöfn þeirra og fjöldi
annarra manna. Þetta var annan dag jóla fyrir tíðir. Síðan bauð konungur
Kjartani í jólaboð sitt og svo Bolla frænda hans. Það er sögn flestra manna
að Kjartan hafi þann dag gerst handgenginn Ólafi konungi er hann var færður
úr hvítavoðum og þeir Bolli báðir. Hallfreður var eigi skírður þann dag því
að hann skildi það til að konungur sjálfur skyldi halda honum undir skírn.
Konungur lagði það til annan dag eftir.
Kjartan og Bolli voru með Ólafi konungi það er eftir var vetrarins. Konungur
mat Kjartan umfram alla menn fyrir sakir ættar sinnar og atgervi og er það
alsagt að Kjartan væri þar svo vinsæll að hann átti sér engan öfundarmann
innan hirðar. Var það og allra manna mál að engi hefði slíkur maður komið af
Íslandi sem Kjartan. Bolli var og hinn vaskasti maður og metinn vel af góðum
mönnum. Líður nú vetur sjá. Og er vorar búast menn ferða sinna, svo hver sem
ætlaði.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.