Sorry for the delay in posting.
Grace

Síðan kaupir Kjartan skip hálft að Kálfi og gera helmingarfélag. Skal
Kjartan koma til skips þá er tíu vikur eru af sumri. Gjöfum var Kjartan út
leiddur frá Borg. Ríða þeir Bolli heim síðan. En er Ólafur frétti þessa
ráðabreytni þá þótti honum Kjartan þessu hafa skjótt ráðið og kvaðst þó eigi
bregða mundu.
Litlu síðar ríður Kjartan til Lauga og segir Guðrúnu utanferð sína.
Guðrún mælti: "Skjótt hefir þú þetta ráðið Kjartan."
Hefir hún þar um nokkur orð þau er Kjartan mátti skilja að Guðrún lét sér
ógetið að þessu.
Kjartan mælti: "Lát þér eigi þetta mislíka. Eg skal gera annan hlut svo að
þér þyki vel."
Guðrún mælti: "Entu þetta því að eg mun brátt yfir því lýsa."
Kjartan bað hana svo gera.
Guðrún mælti: "Þá vil eg fara utan með þér í sumar og hefir þú þá yfir bætt
við mig þetta bráðræði því að ekki ann eg Íslandi."
"Það má eigi vera," segir Kjartan. "Bræður þínir eru óráðnir en faðir þinn
gamall og eru þeir allri forsjá sviptir ef þú ferð af landi á brott og bíð
mín þrjá vetur."
Guðrún kvaðst um það mundu engu heita og þótti sinn veg hvoru þeirra og
skildu með því. Reið Kjartan heim.
Ólafur reið til þings um sumarið. Kjartan reið með föður sínum vestan úr
Hjarðarholti og skildust í Norðurárdal. Þaðan reið Kjartan til skips og
Bolli frændi hans var í för með honum. Tíu voru þeir íslenskir menn saman
alls er í ferð voru með Kjartani og engi vildi skiljast við Kjartan fyrir
ástar sakir. Ríður Kjartan til skips við þetta föruneyti. Kálfur Ásgeirsson
fagnar þeim vel. Mikið fé höfðu þeir utan, Kjartan og Bolli. Halda þeir nú á
búnaði sínum og þegar er byr gaf sigla þeir út eftir Borgarfirði léttan byr
og góðan og síðan í haf. Þeim byrjaði vel, tóku Noreg norður við Þrándheim,
lögðu inn til Agðaness og hittu þar menn að máli og spurðu tíðinda. Þeim var
sagt að höfðingjaskipti var orðið í landinu. Var Hákon jarl frá fallinn en
Ólafur konungur Tryggvason til kominn og hafði allur Noregur fallið í hans
vald. Ólafur konungur bauð siðaskipti í Noregi. Gengu menn allmisjafnt undir
það. Þeir Kjartan lögðu inn til Niðaróss skipi sínu

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.