31. kafli - Af Guðmundi Sölmundarsyni
Ólafur Höskuldsson sat í búi sínu í miklum sóma sem fyrr var ritað.
Guðmundur hét maður Sölmundarson. Hann bjó í Ásbjarnarnesi norður í Víðidal.
Guðmundur var auðigur maður. Hann bað Þuríðar og gat hana með miklu fé.
Þuríður var vitur kona og skapstór og skörungur mikill. Hallur hét son
þeirra, og Barði, Steinn og Steingrímur. Guðrún hét dóttir þeirra, og Ólöf.
Þorbjörg dóttir Ólafs var kvenna vænst og þrekleg. Hún var kölluð Þorbjörg
digra og var gift vestur í Vatnsfjörð Ásgeiri Snartarsyni. Hann var göfugur
maður. Þeirra son var Kjartan faðir Þorvalds, föður Þórðar, föður Snorra,
föður Þorvalds. Þaðan er komið Vatnsfirðingakyn. Síðan átti Þorbjörgu
Vermundur Þorgrímsson. Þeirra dóttir var Þorfinna er átti Þorsteinn
Kuggason.
Bergþóra Ólafsdóttir var gift vestur í Djúpafjörð Þórhalli goða syni Odda
Ýrarsonar. Þeirra son var Kjartan faðir Smið-Sturlu. Hann var fóstri Þórðar
Gilssonar föður Sturlu.
Ólafur pái átti marga kostgripi í ganganda fé. Hann átti uxa góðan er Harri
hét, apalgrár að lit, meiri en önnur naut. Hann hafði fjögur horn. Voru tvö
mikil og stóðu fagurt en þriðja stóð í loft upp. Hið fjórða stóð úr enni og
niður fyrir augu honum. Það var brunnvaka hans. Hann krafsaði sem hross.
Einn fellivetur mikinn gekk hann úr Hjarðarholti og þangað sem nú heita
Harrastaðir í Breiðafjarðardali. Þar gekk hann um veturinn með sextán nautum
og kom þeim öllum á gras. Um vorið gekk hann heim í haga þar sem heitir
Harraból í Hjarðarholtslandi.
Þá er Harri var átján vetra gamall þá féll brunnvaka hans af höfði honum og
það sama haust lét Ólafur höggva hann. Hina næstu nótt eftir dreymdi Ólaf að
kona kom að honum. Sú var mikil og reiðuleg.
Hún tók til orða: "Er þér svefnhöfugt?"
Hann kvaðst vaka.
Konan mælti: "Þér er svefns en þó mun fyrir hitt ganga. Son minn hefir þú
drepa látið og látið koma ógervilegan mér til handa og fyrir þá sök skaltu
eiga að sjá þinn son alblóðgan af mínu tilstilli. Skal eg og þann til velja
er eg veit að þér er ófalastur."
Síðan hvarf hún á brott.
Ólafur vaknaði og þóttist sjá svip konunnar. Ólafi þótti mikils um vert
drauminn og segir vinum sínum og varð ekki ráðinn svo að honum líki. Þeir
þóttu honum best um tala er það mæltu að það væri draumskrök er fyrir hann
hafði borið.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.