30. kafli - Af Geirmundi og Þuríði
Ekki var margt um í samförum þeirra Geirmundar og Þuríðar. Var svo af beggja
þeirra hendi. Þrjá vetur var Geirmundur með Ólafi áður hann fýstist í brott
og lýsti því að Þuríður mundi eftir vera og svo dóttir þeirra er Gróa hét.
Sú mær var þá veturgömul. En fé vill Geirmundur ekki eftir leggja. Þetta
líkar þeim mæðgum stórum illa og segja til Ólafi.
En Ólafur mælti þá: "Hvað er nú Þorgerður, er Austmaðurinn eigi jafn
stórlátur nú sem um haustið þá er hann bað þig mægðarinnar?"
Komu þær engu á leið við Ólaf því að hann var um alla hluti samningarmaður,
kvað og mey skyldu eftir vera þar til er hún kynni nokkurn farnað. En að
skilnaði þeirra Geirmundar gaf Ólafur honum kaupskipið með öllum reiða.
Geirmundur þakkar honum vel og sagði gefið allstórmannlega. Síðan býr hann
skipið og siglir út úr Laxárósi léttan landnyrðing og fellur veðrið er þeir
koma út að eyjum. Hann liggur út við Öxney hálfan mánuð svo að honum gefur
eigi í brott.
Í þenna tíma átti Ólafur heimanför að annast um reka sína. Síðan kallar
Þuríður dóttir hans til sín húskarla, bað þá fara með sér. Hún hafði og með
sér meyna. Tíu voru þau saman. Hún lætur setja fram ferju er Ólafur átti.
Þuríður bað þá róa eða sigla út eftir Hvammsfirði. Og er þau koma út að
eyjum bað hún þá skjóta báti útbyrðis er stóð á ferjunni. Þuríður sté á
bátinn og tveir menn aðrir en hún bað þá gæta skips er eftir voru þar til er
hún kæmi aftur. Hún tók meyna í faðm sér og bað þá róa yfir strauminn þar
til er þau mættu ná skipinu. Hún greip upp nafar úr stafnlokinu og seldi í
hendur förunaut sínum öðrum, bað hann ganga á knarrarbátinn og bora svo að
ófær væri ef þeir þyrftu skjótt til að taka.
Síðan lét hún sig flytja á land og hafði meyna í faðmi sér. Það var í
sólarupprás. Hún gengur út eftir bryggju og svo í skipið. Allir menn voru í
svefni. Hún gekk að húðfati því er Geirmundur svaf í. Sverðið Fótbítur hékk
á hnykkistafnum. Þuríður setur nú meyna Gró í húðfatið en greip upp Fótbít
og hafði með sér. Síðan gengur hún af skipinu og til förunauta sinna. Nú
tekur mærin að gráta. Við það vaknar Geirmundur og sest upp og kennir barnið
og þykist vita af hverjum rifjum vera mun.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.