Probably the best thing would be to suspend the translations after this one
until after the new year. Happy Holidays and a Wonderful New Year to all!
Grace

Það var á einu hausti að í því sama holti lét Ólafur bæ reisa og af þeim
viðum er þar voru höggnir í skóginum en sumt hafði hann af rekaströndum.
Þessi bær var risulegur. Húsin voru auð um veturinn.
Um vorið eftir fór Ólafur þangað byggðum og lét áður saman reka fé sitt og
var það mikill fjöldi orðinn því að engi maður var þá auðgari að kvikfé í
Breiðafirði. Ólafur sendir nú orð föður sínum að hann stæði úti og sæi ferð
hans þá er hann fór á þenna nýja bæ og hefði orðheill fyrir. Höskuldur kvað
svo vera skyldu.
Ólafur skipar nú til, lætur reka undan fram sauðfé það er skjarrast var. Þá
fór búsmali þar næst. Síðan voru rekin geldneyti. Klyfjahross fóru í síðara
lagi. Svo var skipað mönnum með fé þessu að það skyldi engan krók rísta. Var
þá ferðarbroddurinn kominn á þenna bæ hinn nýja er Ólafur reið úr garði af
Goddastöðum og var hvergi hlið í milli. Höskuldur stóð úti með heimamenn
sína.
Þá mælti Höskuldur að Ólafur son hans skyldi þar velkominn og með tíma á
þenna hinn nýja bólstað "og nær er það mínu hugboði að þetta gangi eftir að
lengi sé hans nafn uppi."
Jórunn húsfreyja segir: "Hefir ambáttarson sjá auð til þess að uppi sé hans
nafn."
Það var mjög jafnskjótt að húskarlar höfðu ofan tekið klyfjar af hrossum og
þá reið Ólafur í garð.
Þá tekur hann til orða: "Nú skal mönnum skeyta forvitni um það er jafnan
hefir verið um rætt í vetur hvað sjá bær skal heita. Hann skal heita í
Hjarðarholti."
Þetta þótti mönnum vel til fundið af þeim atburðum er þar höfðu orðið.
Ólafur setur nú bú saman í Hjarðarholti. Það varð brátt risulegt. Skorti þar
og engi hlut. Óxu nú mjög metorð Ólafs. Báru til þess margir hlutir. Var
Ólafur manna vinsælstur því að það er hann skipti sér af um mál manna þá
undu allir vel við sinn hlut. Faðir hans hélt honum mjög til virðingar.
Ólafi var og mikil efling að tengdum við Mýramenn. Ólafur þótti göfgastur
sona Höskulds.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.