If anyone would like to work on the Kjalsnesinga Saga
http://www.snerpa.is/net/isl/kjalnes.htm with me, I would welcome it until
Jan 25 when we start the Laxdaela Saga. There isn't an online English
translation that I could find and the only one in print is in an expensive
collection. But...there is zero verse in it! I was planning on the same
schedule as we had with Njall - - two sections a week.
Grace

1. kafli

Helgi bjóla son Ketils flatnefs nam Kjalarnes millum Leiruvogs og Botnsár og
bjó að Hofi á Kjalarnesi. Hann var nytmenni mikið í fornum sið, blótmaður
lítill, spakur og hægur við alla. Helgi átti Þórnýju dóttur Ingólfs í Vík er
fyrst byggði Ísland. Þeirra synir voru þeir Þorgrímur og Arngrímur. Þeir
voru báðir miklir menn og sterkir og hinir vasklegustu menn.

Helgi skipaði skipverjum sínum lönd þau sem hann hafði numið. Hann fékk
Þrándi á Þrándarstöðum, Eilífi í Eilífsdal, Hækingi í Hækingsdal, Tind á
Tindsstöðum og þar hverjum sem honum þótti fallið vera.

Maður hét Örlygur. Hann var írskur að allri ætt. Í þann tíma var Írland
kristið. Þar réð fyrir Konofogor Írakonungur. Þessi fyrrnefndur maður varð
fyrir konungs reiði.

Hann fór að finna Patrek biskup frænda sinn en hann bað hann sigla til
Íslands "því að þangað er nú," sagði hann, "mikil sigling ríkra manna. En eg
vil það leggja til með þér að þú hafir þrjá hluti. Það er vígð mold að þú
látir undir hornstafi kirkjunnar og plenarium og járnklukku vígða. Þú munt
koma sunnan að Íslandi. Þá skaltu sigla vestur fyrir þar til er fjörður
mikill gengur vestan í landið. Þú munt sjá í fjörðinn inn þrjú fjöll há og
dali í öllum. Þú skalt stefna inn fyrir hið synnsta fjall. Þar muntu fá góða
höfn og þar er spakur formaður er heitir Helgi bjóla. Hann mun við þér taka
því að hann er lítill blótmaður og hann mun fá þér bústað sunnan undir því
fjalli er fyrr sagði eg þér frá. Þar skaltu láta kirkju gera og gefa hinum
heilaga Kolumba. Far nú vel," sagði biskup, "og geym trú þinnar sem best
þóttú verðir með heiðnum."

Eftir það býr Örlygur ferð sína og er frá ferð hans það fyrst að segja að
allt gekk eftir því sem biskup sagði. Hann tók í Þerneyjarsundi höfn. Síðan
fór hann að finna Helga bjólu og tók hann vel við honum. Reisti Örlygur þar
nú bú og kirkju og bjó þar síðan til elli.

Fred and Grace Hatton
Hawley Pa