We have come to the end of Njall's Saga. We will begin the Laxdaela Saga
January 25, 2010. Thanks to Haukur, Llama Nom, Brian, Alan, Patricia and
all others who contributed over the past couple of years!

Grace

Nú er að segja frá Flosa að hann gengur upp og tekur lík Kols og býr um og
gefur fé mikið til legs honum. Flosa stukku aldrei hermdaryrði til Kára.
Flosi fór þaðan suður um sjá og hóf þá upp göngu sína og gekk suður og létti
ekki fyrr en hann kom til Rómaborgar. Þar fékk hann svo mikla sæmd að hann
tók lausn af sjálfum páfanum og gaf þar til fé mikið. Hann fór þá aftur hina
eystri leið og dvaldist víða í borgum og gekk fyrir ríka menn og þá af þeim
mikla sæmd. Hann var í Noregi um veturinn eftir og þá skip af Eiríki jarli
til útferðar og hann fékk honum mjöl mikið og margir menn aðrir gerðu
sæmilega til hans. Sigldi hann síðan út til Íslands og kom í Hornafjörð og
fór þá heim til Svínafells. Hafði hann þá af hendi innt alla sætt sína bæði
í utanferðum og fégjöldum.


159. kafli

Nú er segja frá Kára að um sumarið eftir fór hann til skips síns og sigldi
suður um sæ og hóf upp göngu sína í Norðmandí og gekk suður og þá lausn og
fór aftur hina vestri leið og tók skip sitt í Norðmandí og sigldi norður um
sjá til Dofra á Englandi. Þaðan sigldi hann vestur um Bretland og svo norður
með Bretlandi og norður um Skotlandsfjörðu og létti eigi fyrr en hann kom
norður í Þrasvík á Katanesi til Skeggja bónda. Fékk hann þá þeim Kolbeini og
Dagviði byrðinginn. Sigldi Kolbeinn þessu skipi til Noregs en Dagviður var
eftir í Friðarey. Kári var þenna vetur á Katanesi. Á þessum vetri andaðist
húsfreyja hans á Íslandi.

Um sumarið eftir bjóst Kári til Íslands. Skeggi fékk honum byrðing. Voru
þeir þar á átján. Þeir urðu heldur síðbúnir og sigldu þó í haf og höfðu
langa útivist. En um síðir tóku þeir Ingólfshöfða og brutu þar skipið allt í
spón en þó varð mannbjörg. Kafahríð var á. Spyrja þeir nú Kára hvað nú skal
til ráða taka en hann sagði það ráð að fara til Svínafells og reyna þegnskap
Flosa. Gengu þeir þá til Svínafells í hríðinni.

Flosi var í stofu. Hann kenndi Kára er hann kom í stofuna og spratt upp í
móti honum og minntist til hans og setti hann í hásæti hjá sér. Flosi bauð
Kára að vera þar um veturinn. Kári þá það. Sættust þeir þá heilum sáttum.
Flosi gifti þá Kára Hildigunni bróðurdóttur sína er Höskuldur Hvítanesgoði
hafði átta. Bjuggu þau þá fyrst að Breiðá.

Það segja menn að þau yrðu ævilok Flosa að hann færi utan þá er hann var
orðinn gamall að sækja sér skálavið og var hann í Noregi þann vetur. En um
sumarið varð hann síðbúinn. Menn ræddu um að vant væri skip hans. Flosi
sagði vera ærið gott gömlum og feigum og sté á skip og lét í haf og hefir
til þess skips aldrei spurst síðan.

Þessi voru börn þeirra Kára Sölmundarsonar og Helgu Njálsdóttur: Þorgerður
og Ragneiður og Valgerður og Þórður er inni brann. En börn þeirra
Hildigunnar og Kára voru þeir Starkaður og Þórður og Flosi. Son Flosa var
Kolbeinn er ágætastur maður hefir verið einnhver í þeirri ætt.

Og lúkum vér þar Brennu-Njáls sögu.
Fred and Grace Hatton
Hawley Pa