Það var einu hverju sinni að þeir fengu áföll stór þrjú nokkur. Sagði Flosi
þá að þeir mundu nokkur vera í nánd löndum og þetta væru grunnföll. Þoka var
á mikil en veðrið óx svo að hríð mikla gerði að þeim. Fundu þeir eigi fyrr
en þá keyrði á land upp um nótt eina og varð þar borgið mönnum en skip braut
allt í spón og fé máttu þeir ekki bjarga. Urðu þeir að leita sér verma.

En um daginn eftir gengu þeir upp á hæð nokkura. Var þá veður gott. Flosi
spurði ef nokkur maður kenndi land þetta. Þar voru þeir menn tveir er farið
höfðu áður og sögðust kenna að vísu "og erum vér komnir við Orkneyjar í
Hrossey."

"Fá máttum vér betri landtöku," segir Flosi, "því að Helgi Njálsson var
hirðmaður Sigurðar jarls Hlöðvissonar er eg vó."

Leituðu þeir sér þá fylgsnis og reyttu á sig mosa og lágu svo um stund og
eigi langa áður Flosi mælti: "Ekki skulum vér hér liggja lengur svo að
landsmenn verði þess varir."

Stóðu þeir þá upp og gerðu ráð sitt.

Flosi mælti þá til sinna manna: "Vér skulum ganga allir á vald jarlsins.
Gerir oss ekki annað því að jarl hefir að líku líf vort ef hann vill eftir
því leita."

Gengu þeir þá allir í braut þaðan. Flosi mælti að þeir skyldu engum manni
segja tíðindin eða frá ferðum sínum fyrr en hann segði jarli.

Fóru þeir þá til þess er þeir fundu menn þá er þeim vísuðu til jarls. Gengu
þeir þá fyrir jarl og kvaddi Flosi hann og allir þeir. Jarl spurði hvað
manna þeir væru. Flosi nefndi sig og sagði úr hverri sveit hann var af
Íslandi. Jarl hafði spurt áður brennuna og kenndist hann af því þegar við
mennina.

Jarl spurði þá Flosa: "Hvað segir þú mér til Helga Njálssonar, hirðmanns
míns?"

"Það," sagði Flosi, "að eg hjó höfuð af honum."

Jarl mælti: "Takið þá alla."
Fred and Grace Hatton
Hawley Pa