Kári mælti: "Ekki skal svo vera mágur því að þegar ef eg veg víg nokkurt þá
munu þeir það mæla að þú sért í ráðum með mér og vil eg það eigi. En það vil
eg að þú takir við handsölum á fé mínu og eignir ykkur Helgu Njálsdóttur
konu minni og dætrum mínum. Mun það þá ekki upp tekið af þeim sökudólgum
mínum."

Þorgeir játaði því sem Kári vildi beitt hafa. Tók Þorgeir þá handsölum á fé
Kára.

Síðan reið Kári í braut. Hann hafði hesta tvo og vopn sín og klæði og
nokkurt lausafé í gulli og silfri. Kári reið nú vestur fyrir Seljalandsmúla
og upp með Markarfljóti og svo upp í Þórsmörk. Þar eru þrír bæir er í Mörk
heita allir. Á miðbænum bjó sá maður er Björn hét og var kallaður Björn
hvíti. Hann var Kaðalsson, Bjálfasonar. Bjálfi hafði verið leysingi Ásgerðar
móður Njáls og Holta-Þóris. Björn átti þá konu er Valgerður hét. Hún var
Þorbrandsdóttir, Ásbrandssonar. Móðir hennar hét Guðlaug. Hún var systir
Hámundar föður Gunnars að Hlíðarenda. Hún var gefin til fjár Birni og unni
hún honum ekki mikið en þó áttu þau börn saman. Þau áttu gnóttir í búi.
Björn var maður sjálfhælinn en húsfreyju hans þótti það illt. Hann var
skyggn og skjótur á fæti. Þangað kom Kári til gistingar og tóku þau við
honum báðum höndum. Var hann þar um nóttina.

Um morguninn töluðust þeir við.

Kári mælti til Bjarnar: "Það vildi eg að þú tækir við mér. Þykist eg hér vel
kominn með þér. Vildi eg að þú værir í ferðum með mér er þú ert maður skyggn
og frár enda ætla eg að þú munir öruggur til áræðis."

"Hvorki frý eg mér," segir Björn, "skyggnleiks né áræðis eða nokkurrar
karlmennsku. En því munt þú hingað kominn að nú mun fokið í öll skjól. En
við áskorun þína Kári," segir Björn, "þá skal ekki gera þig líkan
hversdagsmönnum. Skal eg víst verða þér að liði öllu slíku sem þú beiðir."

Fred and Grace Hatton
Hawley Pa