Þeir kváðu hann með nokkuru góðu fara mundu. Dvaldist Hallur þar nokkura
stund, og áðu. Eftir það tóku þeir hesta sína og riðu á Sólheima um kveldið
og voru þar um nóttina.

En um daginn eftir riðu þeir í Holt. Þorgeir var úti og svo Kári og menn
þeirra því að þeir kenndu ferð Halls. Hann reið í blárri kápu og hafði litla
öxi silfurrekna í hendi. En er þeir komu í túnið þá gekk Þorgeir í móti þeim
og tók Hall af baki og minntust þeir Kári báðir við hann og leiddu hann í
milli sín í stofu og settu hann á pall í hásæti og spurðu hann margra
tíðinda. Var hann þar um nóttina.

Um morguninn eftir vakti Hallur til máls við Þorgeir ef hann vildi sættast
og sagði hverjar sættir þeir buðu honum og talaði þar um mörgum orðum fögrum
og góðgjarnlegum.

Þorgeir svarar: "Kunnigt má þér það vera að eg vildi engum sættum taka við
brennumenn."

"Allt var það annað mál," segir Hallur. "Þér voruð þá vígreiðir. Hafið þér
nú og mikið að gert um mannadráp síðan."

"Svo mun yður þykja," segir Þorgeir, "en hverja sætt bjóðið þér Kára?"

"Boðin mun honum sættin sú er sæmileg er," segir Hallur, "ef hann vill
sættast."

Kári mælti: "Þess vil eg biðja þig, Þorgeir vinur, að þú sættist því að þinn
hlutur má ekki verða betri en góður."

"Illt þykir mér að sættast og skiljast við þig nema þú takir slíka sætt sem
eg tek," segir Þorgeir.

"Eigi vil eg það," segir Kári, "að sættast. En þó kalla eg nú að við höfum
hefnt brennunnar. En sonar míns kalla eg vera óhefnt og ætla eg mér einum
það að hefna hans slíkt sem eg fæ að gert."

En Þorgeir vildi eigi fyrr sættast en Kári sagði á ósátt sína ef hann
sættist eigi. Handsalaði Þorgeir þá grið Flosa og hans mönnum til
sáttarfundarins en Hallur seldi önnur í móti er hann hafði tekið af Flosa og
Sigfússonum. En áður þeir skildust gaf Þorgeir Halli gullhring og
skarlatsskikkju en Kári silfurmen og voru á gullkrossar þrír. Hallur þakkaði
þeim vel gjafarnar og reið í braut með hinni mestu sæmd og létti eigi fyrr
en hann kom til Svínafells. Tók Flosi vel við honum.

Fred and Grace Hatton
Hawley Pa