This section is longer than normal, but the beginning of it is just
repetition of previous legal formulae.

Grace



Tel eg hann eiga að verða um sök þá mann sekan, skógarmann óalanda,
óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Tel eg sekt fé hans allt, hálft mér en
hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka eftir hann að lögum.
Lýsi eg sök þessi til fjórðungsdóms þess er sökin á í að koma að lögum. Lýsi
eg löglýsing. Lýsi eg í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsi eg nú til sóknar í
sumar og til sektar fullrar á hönd Glúmi Hildissyni."

Kári Sölmundarson sótti Kol Þorsteinsson og Gunnar Lambason og Grana
Gunnarsson og var það mál manna að honum mæltist furðulega vel. Þorleifur
krákur sótti Sigfússonu alla en Þorgrímur hinn mikli bróðir hans sótti
Móðólf Ketilsson og Lamba Sigurðarson og Hróar Hámundarson, bróður Leiðólfs
hins sterka. Ásgrímur Elliða-Grímsson sótti Leiðólf og Þorstein
Geirleifsson, Árna Kolsson og Grím hinn rauða og mæltist þeim öllum vel.
Síðan lýstu aðrir menn sökum sínum og var það lengi dags að því gekk. Fóru
menn þá heim til búða sinna.

Eyjólfur Bölverksson gekk til búðar með Flosa. Þeir gengu austur um búðina.

Flosi mælti til Eyjólfs: "Hvort sérð þú nokkura vörn í málum þessum?"

"Enga," segir Eyjólfur.

"Hvað er nú til ráðs?" segir Flosi.

"Nú er úr vöndu að ráða," segir Eyjólfur, "en þó mun eg til leggja nokkur
ráð enn með yður. Nú skalt þú selja af höndum goðorð þitt og í hendur
Þorgeiri bróður þínum en þú segist í þing með Áskatli goða Þorketilssyni
norðan úr Reykjardal. En ef þeir vita þetta eigi þá má vera að þeim verði að
þessu mein því að þeir munu sækja í Austfirðingadóm en þeir ættu í
Norðlendingadóm að sækja og mun þeim þetta yfir sjást. Og er fimmtarsdómsmál
á þeim ef þeir sækja í annan dóm en vera á. Skulum vér það mál þá upp taka
og þó að síðasta kosti."

Flosi mælti: "Vera má að oss sé nú launaður hringurinn."

"Eigi veit eg það," segir Eyjólfur, "en veita skal eg yður til laga svo að
það sé mál manna að eigi sé von framar. Skalt þú nú senda eftir Áskatli en
Þorgeir skal nú þegar koma til þín og einn maður með honum."

Litlu síðar kom Þorgeir þar og tók við goðorðinu. Þá kom þar og Áskell.
Sagðist Flosi þá í þing með honum. Var þetta nú ekki á fleiri manna vitorði
en þeirra.
Fred and Grace Hatton
Hawley Pa