Ketill úr Mörk svaraði: "Ef undir oss bræður skal koma kjörið þá munum vér
það skjótt kjósa að þú sért fyrir. Heldur þar margt til þess. Þú ert maður
ættstór og höfðingi mikill, harðdrægur og vitur. Virðum vér og svo að þú
setjist fyrir vora nauðsyn í málið."

Flosi mælti: "Það er líkast að eg játist undir þetta sem bæn yður stendur
til. Mun eg nú og ákveða hverja aðferð vér skulum hafa. Og er það mitt ráð
að hver maður ríði heim af þingi og sjái um bú sitt í sumar meðan töður
manna eru undir. Eg mun og heim ríða og vera heima í sumar. En drottinsdag,
þann er átta vikur eru til vetrar, þá mun eg láta syngja mér messu heima og
ríða síðan vestur yfir Lómagnúpssand. Hver vor skal hafa tvo hesta. Ekki mun
eg lið auka úr því sem nú hefir til eiða gengið því að vér höfum það ærið
margt ef oss kemur það vel að haldi. Eg mun ríða drottinsdaginn og svo
nóttina með. En annan dag vikunnar mun eg kominn á Þríhyrningshálsa fyrir
miðjan aftan. Skuluð þér þá þar allir komnir er eiðsvarar eruð við þetta
mál. En ef nokkur er sá þá eigi þar kominn er í mál þessi hefir gengið þá
skal engu fyrir týna nema lífinu ef vér megum ráða."

Ketill mælti: "Hversu má það saman fara að þú ríðir drottinsdag heiman en
komir annan dag vikunnar á Þríhyrningshálsa?"

Flosi mælti: "Eg mun ríða upp úr Skaftártungu og fyrir norðan
Eyjafjallajökul og ofan í Goðaland og mun þetta endast ef eg ríð hvatlega.
Mun eg nú og segja yður alla mína fyrirætlan að þá er vér komum þar saman
skulum vér ríða til Bergþórshvols með öllu liðinu og sækja Njálssonu með
eldi og járni og ganga eigi fyrr frá en þeir eru allir dauðir. Skuluð þér
þessi ráðagerð leyna því að líf vort allra liggur við. Munum vér nú láta
taka hesta vora og ríða heim.

Gengu þeir þá allir til búða sinna.

Síðan lét Flosi söðla hesta sína og biðu engra manna og ríða síðan heim.
Flosi vildi eigi finna Hall mág sinn því að hann þóttist vita að Hallur
mundi letja allra stórvirkja.

Njáll reið heim af þingi og synir hans og voru þeir heima allir um sumarið.
Njáll spurði Kára mág sinn hvort hann mundi nokkuð ríða austur til Dyrhólma
til bús síns.


Fred and Grace Hatton
Hawley Pa