This ends up - purest Hollywood - as near to Farce as they can get - we seem to do it better
 
Og þar kom að hann slóst á tal við Guðrúnu dóttur Guðbrands svo að það
töluðu menn að hann mundi fífla hana.
And it came about that he began to talk  with Guðrun (the) daughter of Guðbrand
so that men were saying he wanted to seduce her
 
En er Guðbrandur varð þess var taldi
hann á hana mjög er hún átti tal við Hrapp
and when Guðbrand heard/was told this he greatly rebuked her for having talked with Hrapp
 
 og bað hana að varast að mæla
nokkuð við hann svo að eigi heyrðu allir menn.
and bade her to speak never to him so that no one heard (never in private)
 
Hún hét góðu um fyrst en þó
dró til vanda um tal þeirra.
She promised with good (intent) at first, but nevertheless their conversations became a habit (more frequent)
 
Þá setti Guðbrandur til Ásvarð verkstjóra sinn
að ganga með henni hvert er hún færi.
Then set Guðbrand his foreman/overseer Asvarð to go with her (follow)
where ever she might go (? subj.?)
 
Einu hverju sinni var það að hún beiddist að fara á hnotskóg að skemmta sér
og fylgdi Ásvarður henni.
It was one particular time that she asked for herself to go to the nut-grove
to amuse herself and Asvarð followed her (accompanied) 
 
Hrappur leitar eftir þeim og finnur þau á
hnotskóginum. Hann tók í hönd Guðrúnu og leiddi hana eina saman.
Hrapp seeks for them and finds them in the nut-grove. He takes
Guðrun by the hand and leads her away alone (well unaccompanied -
except by himself)
 
Síðan fór
Ásvarður að leita hennar og fann þau í runni einum liggja bæði saman.
Then Asvarð went to find her and  found them lying in some
bushes together
 
Hann
hleypur að með öxi reidda og hjó til fótar Hrapps en Hrappur brást við fast
og missti Ásvarður hans.
He runs at them with axe raised and hacked at the leg (?) of Hrapp but
Hrapp moved/turned quickly and Asvarð missed him
 
Hrappur spratt á fætur sem skjótast og þreif öxi
sína. Síðan vildi Ásvarður undan snúast. Hrappur höggur í sundur í honum
hrygginn.
Hrapp sprang to his feet as fast as he was able, and grabbed his axe
(a good spare weapon) . Then Asvarð wanted to turn away  Hrapp slices asunder his back bone (Z) (the back-bone of him- use of dat.)
 
Þá mælti Guðrún: "Nú hefir þú unnið er þú munt eigi með föður mínum lengur
vera. En þó er það sumt er honum mun enn verr þykja því að eg fer með
barni."
Then spoke Guðrun "Now you have done that (in such a way) you will not
be with my father any longer, but there is still something worse (to/for him)
for I am with child
 
Hrappur svarar: "Eigi skal hann þetta af öðrum spyrja og skal eg fara heim
og segja honum hvorttveggja."
Hrapp replies "He shall not hear this from others I shall go home (back to
the house) and tell him both things"
 
"Þá munt þú eigi með fjörvi í braut komast," segir hún.
"Then you may not come out  (escape) with your life" says she
 
"Á það skal hætta," segir hann.
"To that I shall risk" says he (take my chances)
 
Eftir það fylgir hann henni til kvenna annarra en hann fór heim.
After that he escorts her to the other women and he went to the house
 
Guðbrandur sat í öndvegi og var fátt manna í stofunni. Hrappur gekk fyrir
hann og bar hátt öxina.
Guðbrand sat  in his High Seat and there were but a few men in the
sitting-room (Z). Hrapp walked up to him bearing his axe
 
Guðbrandur spurði: "Hví er blóðug öx þín?"
Guðbrand enquired "Why is your axe all bloody"
 
"Eg gerði að bakverk Ásvarðar verkstjóra þíns," segir Hrappur.
"I put right/healed (Z) the back ache of your overseer Asvarð says Hrapp
 
"Það mun eigi af góðu," segir Guðbrandur. "Þú munt hafa vegið hann."
"Not from kindness" says Guðbrand "you must have killed him"
 
"Svo er víst," segir Hrappur.
"That is certain" says Hrapp
 
"Hvað var til saka?" segir Guðbrandur.
"What was the cause/ for what reasons" says Guðbrand
 
"Lítið mundi yður þykja," segir Hrappur. "Hann vildi höggva af mér fótinn."
"It may seem to you (polite pl) a small thing " says Hrapp "He wanted
to cut off my leg"
 
"Hvað hafðir þú til gert áður?" segir Guðbrandur.
"What had you done before (what had you been up to)  says Guðbrand
 
"Það er hann átti enga sök á," segir Hrappur.
"That for which he had no concern/ complaint" says Hrapp
(none of his affair)
 
"Þó mátt þú segja hvað það var," segir Guðbrandur.
"Even-so you might say what this was" says Guðbrand
 
Hrappur mælti: "Ef þú vilt það vita þá lá eg hjá Guðrúnu dóttur þinni og
þótti honum það illa."
Hrapp Spoke "If you want to know that, I lay with your daughter and he
thought ill of it"
 
Guðbrandur mælti: "Standi menn upp og taki hann og skal hann drepa."
Guðbrand spoke "Stand up men - and take /hold him and one (of you)
 shall kill him"
 
So we have to end with the bad stuff hitting the fan and Hrapp
looking for a way out of this situation
 
Quite the best episode so far -
Not that I think I have done well with it
Kveðja
Patricia