85. kafli

Sigurður hét jarl er réð fyrir Orkneyjum. Hann var Hlöðvisson Þorfinnssonar
hausakljúfs, Torf-Einarssonar, Rögnvaldssonar, jarls af Mæri, Eysteinssonar
glumru.

Kári var hirðmaður Sigurðar jarls og hafði tekið skatta af Suðureyjum af
Gilla jarli. Biður hann þá Njálssonu fara með sér til Hrosseyjar og sagði að
jarl mundi vel við þeim taka. Þeir þágu það og fóru með Kára og komu til
Hrosseyjar.

Kári fylgir þeim á fund jarls og sagði hverjir menn þeir voru.

"Hversu komu þeir," sagði jarl, "á þinn fund?"

"Eg fann þá," segir Kári, "í Skotlandsfjörðum og börðust þeir við sonu
Moldans úr Dungalsbæ og vörðust þeir svo vel að þeir urpu sér jafnan meðal
viðanna og voru þar jafnan sem mest var raunin. Og vil eg nú biðja þeim
hirðvistar með yður herra."

"Því skalt þú ráða," segir jarl. "Tekist hefir þú svo mikið á hendur við þá
áður."

Þeir voru þá með jarli um veturinn og voru vel virðir.

En er á leið veturinn gerðist Helgi hljóður. Jarl þóttist eigi vita hví það
mundi sæta og spurði hví hann væri hljóður eða hvað honum þætti "eða þykir
þér hér eigi gott?"

"Gott þykir mér hér," segir Helgi.

"Hvað hugsar þú þá?" segir jarl.

"Eigið þér nokkurs ríkis að gæta á Skotlandi?" Segir Helgi.

"Svo mun oss þykja," segir jarl, "eða hvað er að því?"

Helgi svarar: "Skotar munu hafa tekið sýslumann yðvarn af lífi og tekið
njósnir allar að engar skyldu ganga mega yfir Pettlandsfjörð."

Jarl mælti: "Ert þú forspár maður?"

Helgi svarar: "Lítt er það reynt."

"Auka skal eg sæmd þína," segir jarl, "ef þetta er svo. Ella mun þér gjald
að verða."

"Ekki er hann þess háttar maður," segir Kári, "og mun hann satt til segja
því að faðir hans er forspár."

Síðan sendi jarl menn suður til Straumeyjar Arnljóti sýslumanni sínum. Eftir
það sendi Arnljótur menn suður yfir Pettlandsfjörð og tóku þar njósnir og
fréttu það að Hundi jarl og Melsnati jarl höfðu tekið af lífi Hávarð í
Þrasvík mág Sigurðar jarls. Sendi þá Arnljótur orð Sigurði jarli að hann
skyldi koma suður með lið mikið og reka jarla þessa af ríkinu en þegar er
jarl spurði þetta dró hann her saman um allar eyjar.