Þorgeir Starkaðarson mælti: "Flýjum vér nú, ekki mun oss sigurs verða auðið
að svo búnu."

Snéru þeir þá allir í frá.

"Sækjum við nú eftir þeim," segir Kolskeggur, "og tak þú bogann og örvarnar
og munt þú komast í skotfæri við Þorgeir Starkaðarson."

Gunnar svaraði: "Eyðast munu fésjóðarnir um það er þessir eru bættir er hér
liggja nú dauðir."

"Ekki mun þér féfátt verða," sagði Kolskeggur, "en Þorgeir mun eigi fyrr af
láta en hann ræður þér bana."

"Standa munu nokkurir hans makar á götu minni áður en eg hræðist þá," segir
Gunnar.

Síðan ríða þeir heim og segja tíðindin. Hallgerður fagnaði þessum tíðindum
og lofaði mjög verkið.

Rannveig mælti: "Vera má að gott sé verkið en verra verður mér við en eg
ætli að gott muni af leiða."


73. kafli

Þessi tíðindi spyrjast víða og var Þorgeir mörgum mönnum harmdauði. Þeir
Gissur hvíti og Geir goði riðu til og lýstu vígunum og kvöddu búa til þings.
Riðu þá vestur aftur.

Þeir Njáll og Gunnar fundust og töluðu um bardagann.

Þá mælti Njáll til Gunnars: "Ver þú nú var um þig. Nú hefir þú vegið tvisvar
í hinn sama knérunn. Hygg nú svo fyrir hag þínum að þar liggur við líf þitt
ef þú heldur eigi þá sætt sem ger er."

"Hvergi ætla eg mér af að bregða," segir Gunnar, "en þó mun eg þurfa
liðsinni yðvart á þingi."

Njáll svaraði: "Halda mun eg við þig mínum trúnaði til dauðadags."

Ríður Gunnar þá heim.

Líður nú til þings og fjölmenna hvorirtveggju mjög. Er um þetta allfjölrætt
á þingi hversu þessi mál mundu lúkast.

Þeir Gissur hvíti og Geir goði töluðu með sér hvor þeirra lýsa skyldi
vígsökinni Þorgeirs. En þar kom að Gissur tók undir sig málið og lýsti sök
að Lögbergi og kvað svo að orði að "eg lýsi lögmætu frumhlaupi á hönd
Gunnari Hámundarsyni um það er hann hljóp lögmætu frumhlaupi til Þorgeirs
Otkelssonar og særði hann holundarsári því er að ben gerðist en Þorgeir fékk
bana af. Tel eg hann eiga að verða um sök þá sekan skógarmann, óælan,
óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Tel eg sekt fé hans allt, hálft mér en
hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka eftir hann að lögum.
Lýsi eg til fjórðungsdóms þess er sökin á í að koma að lögum, lýsi eg
löglýsing, lýsi eg í heyranda hljóði að Lögbergi, lýsi eg nú til sóknar í
sumar og til sektar fullrar á hönd Gunnari Hámundarsyni."