13. kafli

Þá Bjarna Grímólfsson bar í Grænlandshaf og komu í maðksjá. Fundu
þeir eigi fyrr en skipið gerist maðksmogið undir þeim. Þá töluðu þeir
um hvert ráð þeir skyldu taka. Þeir höfðu eftirbát þann er bræddur
var seltjöru. Það segja menn að skelmaðkurinn smjúgi eigi það tré er
seltjörunni er brætt. Var það flestra manna sögn og tillaga að skipa
mönnum bátinn svo sem hann tæki upp. En er það var reynt þá tók
báturinn eigi meir upp en helming manna. Bjarni mælti þá að menn
skyldu fara í bátinn og skyldi það fara að hlutföllum en eigi að
mannvirðingum. En hver þeirra manna vildi fara í bátinn sem þar voru,
þá mátti hann eigi við öllum taka. Fyrir því tóku þeir þetta ráð að
hluta menn í bátinn og af kaupskipinu. Hlutaðist þar svo til að
Bjarni hlaut að fara í bátinn og nær helmingur manna með honum. Þá
gengu þeir af skipinu og í bátinn er til þess höfðu hlotist.

Þá er menn voru komnir í bátinn mælti einn ungur maður íslenskur sá
er verið hafði förunautur Bjarna: "Ætlar þú Bjarni að skiljast hér
við mig?"

Bjarni svarar: "Svo verður nú að vera."

Hann segir: "Svo með því að þú hést mér eigi því þá er eg fór með þér
frá Íslandi frá búi föður míns."

Bjarni segir: "Eigi sé eg hér þó annað ráð til eða hvað leggur þú hér
til ráðs?"

Hann segir: "Sé eg ráðið til að við skiptumst í rúmunum og farir þú
hingað en eg mun þangað."

Bjarni svarar: "Svo skal vera og það sé eg að þú vinnur gjarna til
lífs og þykir mikið fyrir að deyja."

Skiptust þeir þá í rúmunum. Gekk þessi maður í bátinn en Bjarni upp í
skipið og er það sögn manna að Bjarni létist þar í maðkahafinu og
þeir menn sem í skipinu voru með honum. En báturinn og þeir er þar
voru á fóru leiðar sinnar til þess er þeir tóku land og sögðu þessa
sögu síðan.


14. kafli

Annað sumar eftir fór Karlsefni til Íslands og Guðríður með honum og
fór hann heim til bús síns í Reynines. Móður hans þótti sem hann
hefði lítt til kostar tekið og var hún eigi heima þar hinn fyrsta
vetur. En er hún reyndi að Guðríður var skörungur mikill fór hún
heim. Og voru samfarar þeirra góðar.

Dóttir Snorra Karlsefnissonar var Hallfríður móðir Þorláks byskups
Runólfssonar. Þau áttu son er Þorbjörn hét. Hans dóttir hét Þórunn,
móðir Bjarnar byskups. Þorgeir hét sonur Snorra Karlsefnissonar,
faðir Yngveldar, móður Brands byskups hins fyrra.

Og lýkur þar þessi sögu.