58. kafli

Egill hét maður. Hann var Kolsson Óttarssonar ballar er land nam meðal
Stotalækjar og Reyðarvatns. Bróðir Egils var Önundur í Tröllaskógi, faðir
Halla hins sterka er var að vígi Holta-Þóris með sonum Ketils hins
sléttmála. Egill bjó í Sandgili. Synir hans voru þeir Kolur og Óttar og
Haukur. Móðir þeirra var Steinvör systir Starkaðar undir Þríhyrningi. Synir
Egils voru miklir menn og kappsamir og hinir mestu ójafnaðarmenn. Þeir voru
að einu máli og synir Starkaðar. Systir þeirra var Guðrún náttsól. Hún var
kvenna fríðust og kurteisust.

Egill hafði tekið við Austmönnum tveimur. Hét annar Þórir en annar
Þorgrímur. Þeir voru frumferlar út hingað, vinsælir og auðgir. Þeir voru
vígir vel og fræknir um allt.

Starkaður átti hest góðan, rauðan að lit, og þótti þeim svo sem engi hestur
mundi hafa við þeim í vígi.

Einu hverju sinni var það að þeir bræður úr Sandgili voru undir Þríhyrningi.
Þeir höfðu viðurmæli mikið um alla bændur í Fljótshlíð og þar kom að þeir
töluðu hvort nokkur mundi vilja etja hestum við þá. En þeir menn voru að
mæltu það til sóma þeim og eftirlætis að bæði mundu vera að engi mundi þora
við að etja enda mundi engi eiga þvílíkan hest.

Þá svaraði Hildigunnur: "Veit eg þann mann er þora mun að etja við yður."

"Nefn þú þann," segja þeir.

Hún svarar: "Gunnar að Hlíðarenda á hest brúnan og mun hann þora að etja við
yður og við alla aðra."

"Svo þykir yður konum," segja þeir, "sem engi muni vera hans maki. En þó að
auvirðilega hafi farið fyrir honum Geir goði eða Gissur hvíti þá er eigi
ráðið að oss fari svo."

"Yður mun first um fara," segir hún og varð þeim af hin mesta deila.

Starkaður mælti: "Á Gunnar vildi eg að þér leituðuð síst manna því að erfitt
mun yður verða að ganga í móti giftu hans."

"Leyfa munt þú oss að vér bjóðum honum hestaat?" segja þeir.

"Leyfa," segir hann, "ef þér prettið hann í öngu."

Þeir kváðust svo gera mundu.