47. kafli

Otkell hét maður. Hann var Skarfsson Hallkelssonar. Sá Hallkell barðist við
Grím í Grímsnesi og felldi hann á hólmi. Þeir voru bræður Hallkell og
Ketilbjörn hinn gamli. Otkell bjó í Kirkjubæ. Þorgerður hét kona hans. Hún
var Másdóttir Bröndólfssonar Naddaðarsonar hins færeyska. Otkell var auðigur
að fé. Sonur hans hét Þorgeir. Hann var á ungum aldri og gervilegur maður.

Skammkell hét maður. Hann bjó að Hofi öðru. Hann átti vel fé. Hann var maður
illgjarn og lyginn, ódæll og illur viðureignar. Hann var vinur Otkels
mikill.

Hallkell hét bróðir Otkels. Hann var mikill maður og sterkur og var þar með
Otkatli. Bróðir þeirra hét Hallbjörn hvíti. Hann flutt út þræl einn er
Melkólfur hét. Hann var írskur og heldur óvinsæll. Hallbjörn fór til vistar
með Otkatli og svo Melkólfur þræll. Þrællinn mælti það jafnan að hann
þættist sæll ef Otkell ætti hann. Otkell var vel til hans og gaf honum hníf
og belti og alklæðnað en þrællinn vann allt það er hann vildi. Otkell falaði
þrælinn að bróður sínum. Hann kvaðst mundu gefa honum þrælinn en kvað þó
verra grip í en hann ætlaði. En þegar er Otkell átti þrælinn þá vann hann
allt verr. Otkell talaði oft um það fyrir Hallbirni bróður sínum að honum
þótti þrællinn lítið vinna en hann kvað honum þó annað verr gefið.

Í þenna tíma kom hallæri mikið svo að menn skorti bæði hey og mat og gekk
það um allar sveitir. Gunnar miðlaði mörgum manni hey og mat og höfðu allir
þeir er þangað komu meðan til var. Svo kom að Gunnar skorti bæði hey og mat.
Þá kvaddi Gunnar Kolskegg til ferðar með sér og þá Sigfússonu og Lamba
Sigurðarson. Þeir fóru í Kirkjubæ og kölluðu Otkel út. Hann heilsaði þeim.

Gunnar mælti: "Svo er háttað að eg er kominn að fala að þér hey og mat ef
til er."

Otkell svarar: "Hvorttveggja er til en hvortgi mun eg þér selja."