Þjóstólfur mælti: "Það skalt þú eiga til að segja að eg er eigi þræll því að
eg skal hvergi undan þér láta."

Þá reiddist Glúmur og hjó til Þjóstólfs með saxi en hann brá við öxinni og
kom í fetann og beit í ofan um tvo fingur. Þjóstólfur hjó þegar með öxinni í
móti og kom á öxlina og tók í sundur axlarbeinið og viðbeinað og blæddi inn
úr sárinu. Glúmur greip til Þjóstólfs annarri hendi svo fast að hann féll
við. Glúmur mátti ekki halda því að dauðinn fór á hann. Þjóstólfur huldi hræ
hans með grjóti og tók af honum gullhring.

Hann gekk þar til er hann kom til Varmalækjar. Hallgerður var úti og sá að
blóðug var öxin. Hann kastaði til hennar gullhringinum.

Hún mælti: "Hvað segir þú tíðinda eða hví er öx þin blóðug?"

Hann svaraði: "Eigi veit eg hversu þér mun þykja. Eg segi þér víg Glúms."

"Þú munt því valda," segir hún.

"Svo er," segir hann.

Hún hló að og mælti: "Eigi ert þú engi í leikinum."

Hann mælti: "Hvert ráð sérðu fyrir mér nú?"

"Far þú til Hrúts föðurbróður míns," segir hún, "og sjái hann fyrir þér."

"Eigi veit eg," sagði Þjóstólfur, "hvort þetta er heilræði en þó skal eg
þínum ráðum fram fara um þetta mál."

Tók hann þá hest sinn og reið á braut og lýkur eigi ferð sinni fyrr en hann
kom á Hrútsstaði um nótt. Hann bindur hest sinn á bak húsum, gengur síðan að
dyrum og lýstur á högg mikið. Eftir það gengur hann norður um húsin. Hrútur
hafði vakað og kippti upphávum skóm á fætur sér, fór í treyju og tók sverð í
hönd sér. Hann vafði möttli um vinstri hönd sér og upp um handlegginn. Menn
vöknuðu við er hann gekk út. Hann gekk norður um vegginn og sá þar mann
mikinn og kenndi að þar var Þjóstólfur. Hrútur spurði tíðinda.

"Eg segi þér víg Glúms," segir Þjóstólfur.

"Hver veldur því?" segir Hrútur.

"Eg vó hann," segir Þjóstólfur.

"Hví reiðst þú hingað?" segir Hrútur.

"Hallgerður sendi mig til þín," segir Þjóstólfur.

"Eigi veldur hún þessu þá," segir Hrútur og brá sverðinu.